

Viðburðaveisla á Snæfellsnesi 2021
Miðnætursund í Lýsulaugum á Snæfellsnesi er liður í viðburðaveislu Svæðisgarðsins 2021, í samvinnu við góðan hóp samstarfsaðila. Föstudaginn 9. júli frá kl. 21.30 til miðnættis geta íbúar og gestir baðað sig úr heitu ölkelduvatni og hresst sig á köldu ölkelduvatni. Mojito þema með ætum kryddjurtum, rabarbarasýrópi og graslaugsröri. Sagðar verða sögur & sungið. Allir velkomnir. Gjald á viðburð er kr. 1000-


Gestastofa Snæfellsness er opin alla daga
Gestastofa Snæfellsness, Gestastofa Snæfellsness/ Snæfellsnes Visitor Center , sem Svæðisgarðurinn Snæfellsnes heldur utan um í félagsheimilinu Breiðabliki, er opin alla daga frá kl. 10 - 17. Þar er tekið vel á móti gestum og íbúum með fræðslu um Snæfellsnes, þá fjölmörgu áfangastaði sem byggðir hafa verið upp og alla þá fjölbreyttu þjónustu sem hér er í boði. Árið um kring eru sýningar í húsinu, að þessu sinni um skáldkonuna Júlíönu Jónsdóttur. Markaður með mat og handverk