top of page

Aðventuhandbók Snæfellsness 2020

Aðventa á Snæfellsnesi


Innan skamms fer aðventan í hönd og þetta skrýtna ár breytir engu um það. Aðventa er tími undirbúnings, huggulegheita og samveru. Styttum okkur stundir heima á Snæfellsnesi, gefum Snæfellsnes í jólagjöf og styðjum við fólkið á bak við fyrirtækin og þjónustuaðilana á Snæfellsnesi og finnum gjafir hér heima í ár. Fjölmargt verður um að vera á aðventunni og tækifæri til notalegra stunda víða að finna. Svæðisgarðurinn Snæfellsnes leggur sitt af mörkum á aðventunni í ár með útgáfu Aðventuhandbókar sem dreift verður inn á öll heimili á Snæfellsnesi. Samhliða verður efni handbókarinnar aðgengilegt rafrænt á adventa.snaefellsnes.is Allir þjónustu- og verslunaraðilar á Snæfellsnesi eru birtir í handbókinni þeim að kostnaðarlausu auk þess sem allir viðburðir á Snæfellsnesi eru birtir í aðventudagatali í bókinni. Hugmyndir að skemmtilegri afþreyingu má finna og ábendingar um áhugavert efni sem finna má á netinu eða í nánasta umhverfi.


Umsjón með þessu verkefni hafa auk Svæðisgarðsins; Anok margmiðlun ehf og markaðs- og upplýsingafulltrúar Snæfellsbæjar, Grundarfjarðarbæjar og Stykkishólmsbæjar.


Skráning viðburða - Ókeypis: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSf94CLbVnCt4em1saI0mbHOpskFw2Xw1PMemIdoqRoHy_MZGA/viewform?usp=sf_link


Skráning verslunar- og þjónustuaðila - Ókeypis: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfPcD6LHj7uzSozKkGoiD_BukT9ZxpLSL-39VVgK0mo_mmPeQ/viewform?usp=sf_link


Aðventuvefur Svæðisgarðsins: http://adventa.snaefellsnes.is


Netfang: adventa20@gmail.com


Featured Posts
Recent Posts
Archive
Search By Tags
No tags yet.
Follow Us
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
bottom of page